Heimsdagur barna – Magnað myrkur
Feb 9th
Menningarmiðstöðin Gerðuberg og Frístundamiðstöðin Miðberg
Laugardaginn 11. febrúar 2012 kl. 13-17
Aðgangur ókeypis – allir velkomnir!
Á Heimsdegi barna 2012 gefst gestum kostur á að sækja listasmiðjur þar sem boðið verður upp á viðfangsefni úr töfraveröld íss og myrkurs. Snædrottningar, ískristallar, draugar og margt, margt fleira! Börnum og fullorðnum gefst tækifæri til að spreyta sig, hægt er að búa til sitt eigið hljóðfæri, taka þátt í dansi, gera sér búning, bragða á ristuðum möndlum úti við, gera svellþrykk, ganga í gegnum draugahús o.fl.
Upplýsingar á fleiri tungumálum má finna hér.
Íslenska sem annað líf
Feb 8th
Árlega stunda yfir tvö hundruð nemendur víðsvegar að úr heiminum nám í íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands. Hluti þeirra ílengist hér að loknu námi, aðrir halda aftur utan en í báðum tilvikum er algengt að námsárin hafi margháttuð áhrif á framtíð nemenda; íslenskan verður þeirra annað líf. Í hópi útskrifaðra nemenda eru t.d. margir af fremstu þýðendum íslenskra bókmennta á erlendar tungur en einnig fólk sem hefur haslað sér völl víða í íslensku samfélagi. En hvað felst í því að leggja stund á íslensku sem öðru máli, hvaða áskoranir mæta nemendum og hvaða tækifæri og hindranir bíða þeirra að námi loknu? Föstudaginn 10. febrúar nk. stendur námsgreinin Íslenska sem annað mál á Hugvísindasviði Háskóla Íslands fyrir ráðstefnunni „Íslenska sem annað líf“ þar sem átta fyrrum nemendur líta yfir farinn veg og ræða um reynslu sína og verkefni, ýmist innan og utan háskólans. Fyrirlesarar eru Aleksandra M. Cieślińska, Cynthia Trililani, Ingrid Kuhlman, Irma Matsjavariani, Karen Ralston, Pétur Knútsson, Róland R. Assier og Stoyanka Tanja G. Tzoneva. Ráðstefnan fer fram í stofu 101 í Lögbergi frá kl. 13.00-16.15 og er aðgangur ókeypis og öllum opinn.
Dagskrá
Fundarstjóri: Sigríður Þorvaldsdóttir, aðjunkt
Kl. 13.00 Setning: Margrét Jónsdóttir, prófessor
Kl. 13.35 Cynthia Trililani: Staðalímyndir asískra kvenna á Íslandi og endurspeglun þeirra í bókmenntum og kvikmyndum
Kl. 13.50 Aleksandra M. Cieślińska: Syngjandi í íslenskuna
Kl. 14.05 Umræður
Kl. 14.20 Kaffi
Kl. 14.45 Irma Matsjavariani: Reynsla mín
Kl. 15.00 Stoyanka Tanja G. Tzoneva: Líf án regnhlífar
Kl. 15.30 Ingrid Kuhlman: Veist þú nokkuð um þetta?
Kl. 15.45 Umræður
Kl. 16.10 Ráðstefnuslit: Jón Karl Helgason, dósent
Gaman saman
Feb 1st
Queridos padres y niñ@s hispanohablantes,
Se acerca nuestro próximo encuentro en febrero, exactamente el sábado 4 de febrero de 13:00 a 15:00 horas, Nóaborg, Stangarholt 11, 105 Reykjavík. Barbara Jean Kristvinsson del centro de servicios sociales de Reykjavík nos informará acerca de su trabajo como orientadora de inmigrantes. Mientras que Barbara da su charla, l@s niñ@s fabricarán plastilina y jugarán luego con ella. Esperamos la máxima participación.
Saludos - Anna Magga
Kæru spænskumælandi börn og fjölskyldur,
Þá er komið að samverustundinni í febrúar sem verður laugardaginn 4. febrúar á milli kl. 13 og 15. Við hittumst að venju í leikskólanum Nóaborg, Stangarholti 11 (gengið inn í gegnum garðinn) Barbara Jean Kristvinsson frá Þjónustumiðstöð Hlíða kemur með kynningu á sínu starfi en hún er ráðgjafi fyrir innflytjendur. Á meðan Barbara verður með sína kynningu munu börnin fá að búa til leir og síðan leika með hann. Hlakka til að sjá sem flesta.
Kveðja - Anna Magga
Íslenskunámskeið
Feb 1st
Þau íslenskunámskeið sem nú standa yfir hófust mánudaginn 16. janúar og þeim lýkur miðvikudaginn 29 febrúar.
Næstu námskeið munu hefjast mánudaginn 12. mars og ljúka miðvikudaginn 2. maí næstkomandi.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæðinu um Íslenskunámskeið Alþjóðaseturs.
Túlka- og þýðingaþjónusta Alþjóðaseturs
Feb 1st
Sími: 530-9300
Netfang: tulkun@asetur.is.
Neyðarsími Túlkaþjónustu er 663 0810.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæðinu um Túlka- og þýðendaþjónustu Alþjóðaseturs .
Lögfræðiráðgjöf fyrir innflytjendur
Dec 18th
Alþjóðasetur gleðst yfir því að geta boðið upp á lögfræðiráðgjöf fyrir innflytjendur í samstarfi við RG lögmenn. Þetta er þjónusta fyrir þá sem þurfa á slíkri ráðgjöf að halda í tengslum við stöðu sína sem innflytjenda á Íslandi. Ráðgjöfin er án endurgjalds. Panta má tíma í síma 530 9300 eða á netfangi asetur@asetur.is.


English
Íslenska